Atorka hefur undanfarna mánuði unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins í kjölfar þeirra neikvæðu áhrifa sem heimskreppan hefur haft á eignasafn þess. Atorka hefur, ólíkt mörgum öðrum íslenskum fjárfestingafélögum, nær eingöngu fjárfest í rekstrarfélögum sem flest starfa á alþjóðlegum vaxtarmörkuðum. Almennt er Atorka stærsti hluthafinn í sínum félögum með 20 - 40% eignarhlut. Atorka er þannig leiðandi í stefnumörkun og stærri ákvarðanatöku um rekstur og þróun félaganna bæði með stjórnarsetu og nánu samstarfi við stjórnendur. Ljóst er að virði bæði skráðra og óskráðra félaga í eignasafni Atorku hefur lækkað verulega síðustu mánuði þrátt fyrir að almennt sé rekstur þessara félaga vel viðunandi miðað við aðstæður á mörkuðum. Sala á eignum á þessum tímapunkti er ekki álitlegur valkostur og mikil verðmætaaukning fólgin í því að vinna markvisst með fyrirtæki Atorku næstu ár. Að beiðni lánadrottna var KPMG í London fengið til að vinna verðmat á Promens hf., sem er stærsta einstaka fjárfesting Atorku. Niðurstaða þess verðmats, þar sem nær eingöngu er horft til núverandi markaðsaðstæðna, sem litast af tímabundnum veltusamdrætti og mat fulltrúa lánadrottna á fjárfestingum Atorku, er talsvert frábrugðið mati stjórnar og stjórnenda Atorku á verðmæti eigna félagsins til lengri tíma litið. Í ljósi framangreinds og til að undirbyggja ítarlegar tillögur að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins hefur stjórn Atorku ákveðið að leita til PricewaterhouseCoopers í Danmörku til að leggja vandað heildstætt mat á virði eignasafnsins og líklega þróun þar á næstu árin. Stefnt er að því að sú vinna taki 3-4 vikur og ljúki fyrir lok maí. Í kjölfarið mun Atorka kynna hugmyndir að framtíð félagsins sem miða að því að tryggja sem best stöðu lánadrottna og hluthafa félagsins.