Ný stjórn var kjörin á aðalfundi Byrs sparisjóðs sem haldinn var 13. maí á Hilton Nordica í Reykjavík. Tveir listar voru í kjöri og hlaut B-listi undir forystu Jóns Kr. Sólnes 48,73% atkvæða en A-listi, undir forystu Sveins Margeirssonar hlaut 46,13% atkvæða. Í stjórn Byrs sparisjóðs fyrir næsta starfsár voru því kjörnir Jón Kr. Sólnes, (B), Sveinn Margeirsson (A), Guðmundur Geir Gunnarsson (B), Arnar Bjarnason (A) og Matthías Björnsson (B). Í varastjórn voru kjörnir Þorsteinn Ólafur Þorsteinsson (B) og Stefán Franklín (A). Á fundinum spunnust miklar umræður um hrun íslenska fjármálakerfisins sl. haust og afkomu Byrs á síðasta ári. Fram kom í ræðu Ragnars Z. Guðjónssonar sparisjóðsstjóra að rekstraráætlun Byrs fyrir árið 2009 geri ráð fyrir jákvæðri afkomu og að þrátt fyrir ágjöfina ætti Byr mikla möguleika til að ná fyrri styrk á næstu árum. Hann sagði m.a.: „Forsenda endurreisnar íslensks efnahagslífs er tilvist sjálfstæðra fjármálastofnana sem geta stutt við heimilin og fyrirtækin í landinu. Forsenda þess að Byr geti veitt samkeppnishæfa þjónustu og gætt hagsmuna viðskiptavina sinna, er að fyllsta jafnræðis sé gætt í öllum aðgerðum stjórnvalda við endurreisn íslensks fjármálakerfis. Virk samkeppni fjármálafyrirtækja með dreift eignarhald er forsenda þess að fjárhagur lands og þjóðar rísi á heilbrigðum grunni.“ Atkvæði í stjórnarkjöri greiddu 633 og 5,14% seðla voru auðir. Fundinn sátu fulltrúar 78% virkra atkvæða en stofnfjáreigendur í Byr sparisjóði eru 1.512 talsins. Á fundinum var samþykkt að enginn arður yrði greiddur af stofnfé vegna síðasta árs og ekki nýtt heimild til endurmats stofnfjár samkvæmt 67. grein laga um fjármálafyrirtæki. Nánari upplýsingar: Ragnar Z. Guðjónsson sparisjóðsstjóri, sími 575 4000.
- Ný stjórn Byrs
| Quelle: Byr sparisjóður