Bakkavör á nú í viðræðum við hóp innlendra fagfjárfesta og banka sem eru með um 70% af skuldum móðurfélagsins en stærstur hluti þeirra eru eigendur að skuldabréfum sem félagið hefur gefið út og skráð eru í NASDAQ OMX Kauphöllinni. Viðræðurnar ganga út á framlengingu á gjalddaga skuldabréfanna til 2012. Markmiðið er að allir hagsmunaaðilar njóti ávinnings væntanlegs rekstrarbata hjá Bakkavör í kjölfar viðamikilla hagræðingaraðgerða sem félagið hefur nýlokið og sem hafa gert félaginu kleift að snúa rekstrinum til betri vegar frá og með þessu ári. Viðræðurnar ganga meðal annars út á að eigendur skuldabréfanna njóti talsvert bættra kjara. Okkar fyrirheit gagnvart eigendum skuldabréfanna er að allir aðilar fái greitt að fullu. Ósk félagsins um framlengingu skuldabréfanna kemur í kjölfar samninga við lánveitendur rekstrarfélaga samstæðunnar nú í vor sem munu sjá félaginu fyrir nægjanlegri rekstrarfjármögnun til ársins 2012. Þeir samningar sýna jafnframt tiltrú og stuðning lánveitenda við starfsemi Bakkavarar. Horfur í rekstri Bakkavarar eru góðar þrátt fyrir ríkjandi efnahagsaðstæður. Eins og fram kom í síðasta árshlutauppgjöri félagsins er gert ráð fyrir 15% aukningu framlegðar nú í ár og að EBITDA verði u.þ.b. 125 milljónir punda. Viðræður við fagfjárfesta ganga vel og stjórn félagsins er vongóð um að niðurstöður liggi fyrir fljótlega. Tengiliðir: Ísland: Snorri Guðmundsson Bakkavör Group hf Fjárfestatengsl Sími: +354 550 9710 Farsími +354 858 9710 Tölvupóstur: fjarfestatengsl@bakkavor.com Utan Íslands: Fiona Tooley Citigate Dewe Rogerson Farsími: +44 (0) 7785 703523 Sími : +44 (0)121 455 8370 Tölvupóstur: fiona.tooley@citigatedr.co.uk
- Staða viðræðna við skuldabréfaeigendur
| Quelle: Bakkavör Group hf.