Bráðabirgðastjórn Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis hf. hefur í dag sótt um slitameðferð til Héraðsdóms Reykjavíkur með vísan til 1. tl. 3. mgr. 4. gr. laga nr. 44/2009, um breytingu á lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, með síðari breytingum. Þann 21. mars 2009 ákvað Fjármálaeftirlitið að taka yfir vald hluthafafundar og víkja félagsstjórn SPRON frá í heild sinni. Jafnframt skipaði Fjármálaeftirlitið skilanefnd (nú bráðabirgðastjórn) fyrir SPRON, sem tók við öllum heimildum stjórnar skv. ákvæðum laga nr. 2/1995, sbr. 100. gr. a. laga nr. 161/2002, sem þá var í gildi. Bráðabirgðastjórn SPRON hefur frá því hún var skipuð unnið að því að framkvæma ákvarðanir Fjármálaeftirlitsins og gætt að því að varðveita eignir félagsins og endurskipuleggja rekstur þess með hagsmuni kröfuhafa að leiðarljósi. Ljóst er að félagið uppfyllir ekki lengur skilyrði laga fyrir áframhaldandi rekstri sem fjármálafyrirtæki og telur stjórn félagsins nauðsynlegt að óska eftir slitum á félaginu í samræmi við lög nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki.
- SPRON hf. sækir um slitameðferð
| Quelle: SPRON