Stjórn Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. hefur ráðið Flóka Halldórsson sem framkvæmdastjóra félagsins frá og með 1. júlí nk. Ómar K. Ágústsson, sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra félagsins, mun hætta störfum á sama tíma og hefja störf hjá Nýja Kaupþingi banka hf. Rekstrarfélagið rekur m.a. sjóðina ICEQ, KB ABS 10 og KB ABS 12, sem hafa fengið fjármálagerninga tekna til viðskipta í NASDAQ OMX Iceland hf. Nánari upplýsingar veitir Snjólfur Ólafsson, varaformaður stjórnar félagsins, í síma 692 3232.
- Nýr framkvæmdastjóri ráðinn
| Quelle: KB ABS 12