Vegna niðurstöðu dóma héraðsdóms í málum varðandi Peningamarkaðssjóð Landsbankans vill Landsvaki árétta að Landsvaki hf. og Landsbanki Íslands hf. voru sýknaðir af öllum aðalkröfum stefnenda. Í dómunum er eftirfarandi tekið fram: Fjárfestingar sjóðsins hafi verið innan fjárfestingaheimilda og þeirra laga sem gilda um verðbréfa- og fjárfestingarsjóði. Markaðssetning Peningabréfa Landsbankans hafi ekki verið villandi varðandi áhættustig og öryggi. Kynning sjóðsins hafi verið í samræmi við reglur hans og útboðslýsingu svo og lagaákvæði sem hana varðar. Kynningarefni hafi verið skýrt og aðgengilegt og markaðssetning á engan hátt villandi. Landsvaki lýsir sig ósammála niðurstöðu dómsins um varakröfu stefnenda. Samkvæmt dómnum bar Landsvaka að lækka gengi sjóðsins þann 10. september 2008 vegna frétta um að líkur væru á að ábyrgð vegna XL Leisure Group myndi falla á Eimskip. Dómurinn telur að þeir sem innleystu á tímabilinu frá 10. september 2008 til lokunar 6. október hafi fengið of hátt verð fyrir eignarhlut sinn í sjóðnum og þeir sem eftir sátu hafi orðið fyrir tjóni. Landsvaki vill taka fram að niðurfærslur eigna voru að mati félagsins fullnægjandi í ljósi fyrirliggjandi upplýsinga á hverjum tíma.
Fréttatilkynning vegna niðurstöðu dóma héraðsdóms
| Quelle: Landsvaki