Á fundi stjórnar Byrs sparisjóðs miðvikudaginn 25. nóvember 2009 óskaði Ragnar Z. Guðjónsson sparisjóðsstjóri eftir tímabundinni lausn frá störfum og samþykkti stjórn það. Þessi ráðstöfun var gerð í fullri sátt á milli aðila og hefur stjórn Byrs sparisjóðs óskað eftir áframhaldandi starfskröftum Ragnars við þá fjárhagslegu endurskipulagningu sjóðsins sem í gangi er í samvinnu sjóðsins og kröfuhafa. Tímabundið mun Jón Finnbogason, hdl., taka við störfum Ragnars en hann hefur gegnt starfi forstöðumanns á fjármálasviði Byrs.
- Tímabundar breytingar hjá sparisjóðsstjóra Byrs
| Quelle: Byr sparisjóður