Samkvæmt tilkynningu Byggðastofnunar til Kauphallar Íslands 15. mars síðast liðinn, áætlaði stofnunin að birta ársreikning fyrir árið 2009 nú í dag. Með vísan til reglu 4.3.2 í reglum Kauphallarinnar fyrir útgefendur fjármálagerninga, sem gefnar voru út þann 1. desember 2009, tilkynnist að birtingu ársreiknings Byggðastofnunar fyrir árið 2009 hefur verið frestað. Ástæða frestunarinnar er að Fjármálaráðuneytið hefur ekki enn afgreitt stofnfjáraukningu Byggðastofnunar, en í árslok 2009 samþykkti Alþingi með fjáraukalögum ársins 2009 og fjárlögum ársins 2010, alls 3.600 mkr. aukningu á eigin fé Byggðastofnunar. Vonir Byggðastofnunar standa til þess að úr þessu verði greitt fljótlega, og verður þá um leið tilkynnt um birtingu ársreikningsins.