NASDAQ OMX Iceland hf. hefur samþykkt að Askar Capital hf. verði viðurkenndur ráðgjafi (e. Certified Adviser, CA) á First North Iceland. Hlutverk CA felst í að vera félagi til ráðgjafar og aðstoðar þegar skráningarferlið stendur yfir og vera ráðgjafi og milliliður í samskiptum við markaðinn meðan bréf félags eru til viðskipta á markaðnum. CA fyrirkomulagið er hannað til að byggja traustan markað því það er á ábyrgð CA að fylgjast með því að félög uppfylli ávallt þær aðgangskröfur og upplýsingaskyldur sem gilda á First North. Til að gerast Certified Adviser á First North þurfa fyrirtæki að uppfylla ákveðin skilyrði. Þau helstu eru að CA þarf að: - vera lögaðili. - hafa nægilega marga starfsmenn. - tryggja að starfsmenn Certified Adviser séu hæfir og búi yfir nægilegri reynslu í fjármálaþjónustu við fyrirtæki. - setja innri reglur um viðskipti með hluti í félögum sem þiggja þjónustu Certified Adviser. - hafa verklag og vinnureglur um skráningu gagna og geymslu upplýsinga. First North Iceland býður Askar Capital hf. velkomið til starfa sem Certified Adviser.
- Askar Capital verður viðurkenndur ráðgjafi (CA) á First North Iceland
| Quelle: First North Iceland