Stjórn Landsvaka hf., sem rekur verðbréfa-, fjárfestingar- og fagfjárfestasjóði Landsbankans, hefur staðfest ársreikning félagsins fyrir árið 2009. Í lok ársins 2009 annaðist Landsvaki hf. rekstur 22 sjóða um sameiginlega fjárfestingu en á árinu voru stofnaðir 2 nýir sjóðir og 5 sjóðum var slitið. Í árslok nam heildarstærð sjóða í rekstri Landsvaka 44 milljörðum króna samanborið við 76 milljarða í árslok 2008. Lykiltölur í þúsundum króna: Sjá viðhengi. • Ársreikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur ársreikning rekstrarfélagsins og B-hluta sem inniheldur ársreikning verðbréfa-, fjárfestinga- og fagfjárfestasjóða. Þessi framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar voru af Fjármálaeftirlitinu. • Ársreikningurinn hefur verið endurskoðaður af KPMG sem telur að reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á árinu 2009, efnahag þess 31. desember 2009 og breytingu á handbæru fé og hreinni eign sjóðanna á árinu 2009, í samræmi við lög og settar reikningsskilareglur. Þær aðstæður sem sköpuðust á íslenskum fjármálamarkaði við fall bankanna í byrjun október 2008 höfðu mikil áhrif á rekstrarumhverfi félagsins árið 2009 og ollu mikilli rýrnun á eignum einstakra sjóða í rekstri Landsvaka. Hagnaður var af rekstri félagsins á árinu að fjárhæð 39,7 milljónir króna samkvæmt rekstrarreikningi félagsins. Eigið fé Landsvaka hf. í lok ársins nam 323,2 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 53,51% en þetta hlutfall má ekki vera lægra en 8% samkvæmt lögum. Nánari upplýsingar um ársreikning Landsvaka hf. veitir Björn Þór Guðmundsson, framkvæmdastjóri Landsvaka í síma 410 7197.
Reikningsskil 2009
| Quelle: Landsvaki