Í dag 15. apríl 2010 var ársreikningur Stykkishólmbæjar 2009 tekinn til fyrri umræðu. Eins og sveitarstjórnarlög kveða á um, skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn. Seinni umræða verður 20. maí n.k. Í reglugerð nr. 944/2000, um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga, sem tók gildi 1. janúar 2001, eru ákvæði um reikningsskil sveitarfélaga. Þar er gert ráð fyrir að sveitarfélög hagi bókhaldi sínu og reikningsskilum í samræmi við ákvæði laga um bókhald nr. 145/1994 og ársreikninga nr. 144/1994 að svo miklu leyti sem sveitarstjórnarlög mæla ekki fyrir á annan veg eða reglugerðir settar á grundvelli þeirra. Ársreikningar sveitarfélaga skulu byggðir á almennum reikningsskilaaðferðum. Ársreikningur Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2009 byggir á sömu reikningsskilaaðferðum og árið áður í samræmi við framangreind lög og reglur. Helstu lykiltölur: Sjá viðhengi. Nánari upplýsingar veitir: Þór Örn Jónsson, bæjarritari, í síma 433-8100