Samkomulag það sem í gangi hefur verið á milli Eignarhaldsfélagsins Farice ehf. og kröfuhafa þess hefur verið framlengt til 14. maí n.k. Samkomulagið felur sem fyrr í sér að félagið fær frest til að greiða eða semja um gjaldfallnar afborganir. Eignarhaldsfélagið Farice ehf. hefur að undanförnu unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu á félaginu í samstarfi við kröfuhafa og aðra hagsmunahafa félagsins með aðstoð ráðgjafa. Farice hf., dótturfélag Eignarhaldsfélagsins Farice ehf., hefur einnig framlengt samskonar samkomulagi við helstu kröfuhafa sína til 14. maí n.k.
Fjárhagsleg endurskipulagning Eignarhaldsfélagsins Farice ehf og dótturfélagsins Farice hf.
| Quelle: Farice ehf.