NASDAQ OMX Iceland hf. hefur samþykkt að Íslandsbanki hf. verði viðurkenndur ráðgjafi (e. Certified Adviser, CA) á First North Iceland. Hlutverk CA felst í að vera félagi til ráðgjafar og aðstoðar þegar skráningarferlið stendur yfir og vera ráðgjafi og milliliður í samskiptum við markaðinn meðan bréf félags eru til viðskipta á markaðnum. CA fyrirkomulagið er hannað til að byggja traustan markað því það er á ábyrgð CA að fylgjast með því að félög uppfylli ávallt þær aðgangskröfur og upplýsingaskyldur sem gilda á First North. Til að gerast Certified Adviser á First North þurfa fyrirtæki að uppfylla ákveðin skilyrði. Þau helstu eru að CA þarf að: - vera lögaðili - hafa nægilega marga starfsmenn - tryggja að starfsmenn Certified Adviser séu hæfir og búi yfir nægilegri reynslu í fjármálaþjónustu við fyrirtæki - setja innri reglur um viðskipti með hluti í félögum sem þiggja þjónustu Certified Adviser - hafa verklag og vinnureglur um skráningu gagna og geymslu upplýsinga First North Iceland býður Íslandsbanka hf. velkominn til starfa sem Certified Adviser.