Tilkynning frá Össuri hf. Nr. 5/2011 Reykjavík, 11. mars 2011 Afskráning samþykkt NASDAQ OMX á Íslandi samþykkti í dag ósk Össurar frá 15. nóvember 2010 um að taka hlutabréf félagsins úr viðskiptum. Síðasti dagur viðskipta verður 25. mars 2011. Jafnframt hefur NASDAQ OMX á Íslandi ákveðið, að eigin frumkvæði og án samráðs við félagið, að taka upp viðskipti með hlutabréfin frá og með 28. mars 2011. Félaginu er ekki skylt að sinna upplýsingaskyldu gagnvart þeim markaði. Afskráningin kallar ekki á neinar ráðstafanir af hálfu hluthafa. Viðskipti með hlutabréf Össurar fara fram í kauphöll NASDAQ OMX í Kaupmannahöfn. Nánari upplýsingar veita: Jón Sigurðsson, forstjóri sími: +354 515 1300 Hjörleifur Pálsson, fjármálastjóri sími: +354 515 1300 [HUG#1496308]