Ársreikningur Grindavíkurbæjar og stofnana fyrir árið 2011 var lagður fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn Grindavíkur þann 25. apríl 2012.
Samkvæmt lögum ber að fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í bæjarstjórn og verður seinni umræða þann 30. maí 2012 og á þeim fundi er samþykkt bæjarstjórnar á ársreikningnum fyrirhuguð.
Ef bæjarstjórn samþykkir ársreikninginn í fyrirliggjandi mynd og við afgreiðslu og samþykkt bæjarstjórnar koma ekki fram mikilvægar viðbótarupplýsingar, sem geta haft áhrif á gerð ársreikningsins og/eða niðurstöður hans, munu endurskoðendur árita ársreikninginn með fyrirvaralausri áritun.