Árshlutareikningur Landsnets hf. fyrir tímabilið janúar-júní 2013

- Hagnaður tímabilsins nam 1.488 milljónum króna -


Hagnaður Landsnets hf. samkvæmt rekstrarreikningi nam 1.488 mkr. fyrstu 6 mánuði ársins 2013 samanborið við hagnað að fjárhæð 236 mkr. fyrir sama tímabil árið 2012.

Rekstrarhagnaður fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) nam 4.850 mkr. samanborið 4.178 mkr. á sama tímabili fyrra árs og hækkar um 672 mkr. á milli ára. Hrein fjármagnsgjöld nema samtals 1.762 mkr. á tímabilinu en voru 2.647 mkr. á sama tímabili ársins 2012. Hrein fjármagnsgjöld lækka því um 885 mkr. á tímabilinu janúar-júní 2013 í samanburði við sama tímabil 2012.

Eiginfjárhlutfall í lok júní var 19,4% samanborið við 17,7% í lok ársins 2012. Eigið fé í lok tímabilsins nam 14.751 mkr. samanborið við 13.263 í lok árs 2012. Heildareignir félagsins í lok júní námu 76.116 mkr. samanborið við 74.873 mkr. í lok árs 2012. Heildarskuldir námu 61.365 mkr. samanborið við 61.610 mkr. í lok árs 2012.

Lausafjárstaða félagsins er sterk, í lok júní nam handbært fé 9.215 mkr. Handbært fé frá rekstri fyrstu 6 mánuði ársins nam 2.714 mkr.

Árshlutareikningur Landsnets hf. var samþykktur á fundi stjórnar 12. ágúst 2013.

Frekari upplýsingar veitir:

Guðlaug Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri fjármála, sími 563 9311 eða netfang gudlaugs@landsnet.is

 

 

Helstu niðurstöður rekstrarreiknings, lykiltölur efnahagsreiknings og kennitölur (fjárhæðir eru í þúsundum króna): Sjá fréttatilkynningu í viðhengi.

 

 


Anhänge

Landsnet__Fréttatilkynning.pdf Landsnet árshlutareikn 300613.pdf