Yfirlýsing vegna árásar á vef Vodafone


Brotist inn á vef Vodafone aðfararnótt 30. nóvember sl. Búið er að stöðva árásina og unnið er að nánari rannsókn á málinu. Um lögbrot er að ræða sem hefur verið kært til lögreglu.

Árásin hafði engin áhrif á fjarskiptakerfi Vodafone heldur einskorðaðist við vef Vodafone. Í árásinni var upplýsingunum um SMS sem send voru í gegnum vefsíðu Vodafone stolið ásamt lykilorðum að Mínum síðum á Vodafone.is. Ekki var um að ræða hefðbundin SMS milli símtækja. Engum gögnum úr fjarskiptakerfum fyrirtækisins, svo sem upplýsingum um símtöl, SMS milli símtækja, tölvupósti eða öðrum fjarskiptagögnum var stolið.

Vodafone mun í framhaldinu endurskoða öll öryggiskerfi fyrirtækisins til að koma í veg fyrir frekari árásir.

GlobeNewswire