Stjórn Íslandssjóða hf., sem rekur verðbréfasjóði, fjárfestingarsjóði og fagfjárfestasjóði, hefur staðfest árshlutareikning félagsins fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2014.
Afkoma Íslandssjóða hf. fyrstu sex mánuði ársins 2014
-
Árshlutareikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur árshlutareikning Íslandssjóða og B-hluta sem inniheldur árshlutareikning verðbréfa- og fjárfestingarsjóða. Þessi framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu.
-
Hagnaður rekstrarfélagsins eftir skatta fyrstu 6 mánuði ársins 2014 er 25 m.kr. samanborið við 146 m.kr. fyrir sama tímabil árið áður.
-
Rekstrargjöld námu 572 m.kr. samanborið við 479 m.kr. fyrir sama tímabil árið áður og hækkuðu um 19,4%
. -
Hreinar rekstrartekjur námu 603 m.kr. samanborið við 662 m.kr. fyrir sama tímabil árið áður, lækkuðu um 8,9%.
-
Eigið fé 30. júní 2014 nam 1.832 m.kr. en var 2.031 m.kr. í ársbyrjun.
-
Heildareignir félagsins 30. júní 2014 námu 2.414 m.kr. en voru 2.595 m.kr. í árslok 2013.
- Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 209,6% í lok júní, en þetta hlutfall má ekki vera lægra en 8,0%.
-
Í lok júní 2014 voru 16 sjóðir í rekstri hjá félaginu og nam hrein eign þeirra 109.759 milljónum króna samanborið við 117.725 m.kr. í lok árs 2013. Þar af eru 12 verðbréfasjóðir með hreina eign að upphæð 92.010 milljónir króna og 4 fjárfestingarsjóðir með hreina eign að upphæð 17.749 milljónir króna.
-
Í ársbyrjun 2014 tók fagfjárfestasjóðurinn Akur fjárfestingar til starfa en tilkynnt var um stofnun sjóðsins á seinni helmingi 2013. Sjóðurinn er í rekstri Íslandssjóða og hefur fjárfestingargetu uppá 7,3 milljarða króna. Hann telst til framtakssjóða og fjárfestir því einkum í óskráðum hlutabréfum.
-
Árshlutareikningurinn hefur verið kannaður af Deloitte ehf. en við könnun kom ekkert fram sem bendir til annars en að reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á fyrstu 6 mánuðum ársins 2014.
- Á fyrri hluta ársins störfuðu 18 starfsmenn hjá Íslandssjóðum. Framkvæmdastjóri félagsins er Haraldur Örn Ólafsson.
Nánari upplýsingar um árshlutareikning Íslandssjóða hf. veitir Haraldur Örn Ólafsson, framkvæmdastjóri félagsins í síma 440-4593