Samkvæmt úthlutun Fiskistofu fyrir fiskveiðiárið 2015/16 koma alls rúmlega 38.661 þorskígildistonn í hlut skipa HB Granda eða 10,12% af heildarúthlutuninni. Þetta er heldur lægra hlutfall en fiskveiðiárið á undan en þá voru þorskígildistonnin 40.125 og hlutdeildin í heildarkvótanum var á 10,67%. Að þessu sinni eykst þorskvótinn mest eða um 909 tonn á milli ára. Ýsukvótinn eykst einnig en samdráttur er í kvóta á ufsa, grálúðu og íslenskri sumargotssíld.
Úthlutun Fiskistofu hvað varðar HB Granda fiskveiðiárið 2015/16 með samanburði við nýliðið fiskveiðiár er sem hér segir:
| Úthlutun tonn | ||||
| 2015/16 | 2014/15 | Mismunur | ||
| Botnfiskur | ||||
| Þorskur | 9.443 | 8.534 | 909 | |
| Ýsa | 1.910 | 1.596 | 315 | |
| Ufsi | 7.684 | 8.103 | (419) | |
| Gullkarfi | 13.448 | 13.704 | (256) | |
| Djúpkarfi | 3.086 | 3.086 | 0 | |
| Grálúða | 1.423 | 1.618 | (195) | |
| Gulllax | 2.473 | 2.473 | 0 | |
| Aðrar tegundir innan kvóta | 1.098 | 1.104 | (5) | |
| 40.566 | 40.217 | 348 | ||
| Uppsjávarfiskur | ||||
| Síld | 6.818 | 8.634 | (1.816) | |
Vert er að taka fram að umrædd úthlutun tekur aðeins til botnfisks og íslenskrar sumargotssíldar sem úthlutað er innan fiskveiðiársins. Kvótum í deilistofnum, s.s. norsk-íslenskri síld, makríl, kolmunna, loðnu og úthafskarfa er úthlutað sérstaklega og hið sama á við um veiðiheimildir á þorski í Barentshafi.