Marel boðar til kynningarfundar þar sem Árni Oddur Þórðarson forstjóri, Linda Jónsdóttir fjármálastjóri og Árni Sigurðsson yfirmaður stefnumótunar og þróunar kynna yfirtöku Marel á MPS meat processing systems.
Kynningarfundurinn verður haldinn mánudaginn 23. nóvember kl. 16:00 á Hótel Hilton Nordica Suðurlandsbraut 2, Reykjavík.