Undirritun samninga í tengslum við útgáfu íbúðabréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði


 

Mánudaginn, 20. júní, var skrifað undir samninga hjá Íbúðalánasjóði í tengslum við viðskiptavakt á eftirmarkaði.

Frá 1. júlí  2016 hefur Landsbankinn hf. heimild til að kalla sig: "Aðalmiðlara með Íbúðabréf".

  • Aðalmiðlari hefur einn aðgang að verðbréfalánum sem Íbúðalánasjóður veitir.
  • Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir alla markflokka Íbúðabréfa og setur fram kaup- og sölutilboð, að lágmarki skv. eftirfarandi töflu og að nafnvirði, í hvern flokk Íbúðabréfa í Nasdaq OMX á Íslandi.

 

Flokkur Nafnverð
HFF150224 70.000.000
HFF150434 60.000.000
HFF150644 55.000.000

 

 

  • Aðalmiðlari skuldbindur sig til þess að verðmunur kaup- og sölutilboða hans haldist innan tiltekinna marka sem nánar eru skilgreind í samningnum.
  • Aðalmiðlara er skylt að endurnýja tilboð sín innan 10 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir 300 m.kr. að nafnvirði í tilteknum flokki er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða.

Samningurinn gildir frá 1. júlí 2016 til 30. júní 2017.

GlobeNewswire