Í 35. viku 2017 keypti Síminn hf. 20.000.000 eigin hluti að kaupverði 79.550.000 kr. samkvæmt sundurliðun hér á eftir:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
| 28.8.2017 | 14:58 | 5.000.000 | 4,04 | 20.200.000 | 153.724.729 |
| 29.8.2017 | 10:50 | 5.000.000 | 3,99 | 19.950.000 | 158.724.729 |
| 30.8.2017 | 15:24 | 5.000.000 | 3,96 | 19.800.000 | 163.724.729 |
| 1.9.2017 | 10:25 | 5.000.000 | 3,92 | 19.600.000 | 168.724.729 |
| 20.000.000 | 79.550.000 |
Síminn átti 148.724.729 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 168.724.729 eigin hluti eða sem nemur 1,79% af útgefnum hlutum í félaginu.
Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Símans sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 15. maí 2017.
Síminn hefur keypt samtals 168.724.729 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 1,79% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 699.509.906 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 1.102 milljónum króna. Áætlunin er í gildi fram að aðalfundi félagsins árið 2018, en þó aldrei lengur en til 16. mars 2018 eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.
Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.
Nánari upplýsingar veitir Ásta Nína Benediktsdóttir fjárfestatengill Símans í netfangi fjarfestatengsl@siminn.is