Landsvirkjun hefur í dag samið um að kaupa til baka að fullu skuldabréf með ríkisábyrgð að nafnvirði 50 milljónir evra, sem jafngildir um 61 milljón Bandaríkjadala. Skuldabréfið er á gjalddaga 19. mars 2020 og ber 5,6% fasta vexti. Endurkaupin endurspegla sterka fjárhagsstöðu Landsvirkjunar og eru liður í því að lækka skuldir, vaxtagjöld og draga úr gjaldeyrisáhættu fyrirtækisins. Vegna þessara endurkaupa verður einskiptiskostnaður um 5,6 milljónir evra, sem jafngildir um 6,9 milljónum Bandaríkjadala, til hækkunar á vaxtagjöldum Landsvirkjunar á öðrum ársfjórðungi 2018.
Um Landsvirkjun
Landsvirkjun er orkufyrirtæki í eigu íslensku þjóðarinnar og stærsti raforkuframleiðandi landsins. Fyrirtækið vinnur um 70% af allri raforku á Íslandi með 100% endurnýjanlegum orkugjöfum.
Reykjavík, 23. apríl 2018
Nánari upplýsingar veitir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs.
Sími 515 9000, netfang: rafnar.larusson@landsvirkjun.is