Landsvirkjun hefur fyrirframgreitt lán með ríkisábyrgð að nafnvirði um 34 milljónir Bandaríkjadala. Lánasamningurinn var undirritaður árið 2011 vegna verksamnings um framleiðslu og uppsetningu á véla- og rafbúnaði Búðarhálsvirkjunar. Lánið var með jafnar afborganir höfuðstóls og lokagjalddaga árið 2032.
Fyrirframgreiðslan endurspeglar sterka fjárhagsstöðu Landsvirkjunar og er liður í því að lækka skuldir og vaxtagjöld. Vegna þessarar greiðslu fellur til einskiptiskostnaður að fjárhæð um 5,7 milljónir Bandaríkjadala sem kemur til hækkunar á vaxtagjöldum Landsvirkjunar á öðrum ársfjórðungi 2018.
Um Landsvirkjun
Landsvirkjun er orkufyrirtæki í eigu íslensku þjóðarinnar. Fyrirtækið vinnur um 70% af allri raforku á Íslandi, úr 100% endurnýjanlegum orkugjöfum, vatni, jarðvarma og vindi. Aflstöðvar fyrirtækisins eru sautján talsins; fjórtán vatnsaflsstöðvar og þrjár jarðvarmastöðvar, auk tveggja vindmylla.
Reykjavík, 15. júní 2018
Nánari upplýsingar veitir Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs.
Sími 515 9000, netfang: rafnar.larusson@landsvirkjun.is