VÍS: Beiðni um hluthafafund


Stjórn VÍS barst í dag bréf frá þremur hluthöfum, annars vegar Lífeyrissjóði verslunarmanna (8,64%) og hins vegar Lífeyrissjóði Starfsmanna ríkisins A-deild (5,27%) og B-deild (0,98%), þar sem farið er fram á að stjórn félagsins boði til hluthafafundar þar sem stjórnarkjör er sett á dagskrá. Samtals eiga þessir þrír hluthafar 14,89% í VÍS.

Í 85. gr. laga um hlutafélög nr. 2/1995 og 1. mgr. 12. gr. samþykkta VÍS kemur fram að boða skuli til hluthafafundar ef hluthafar, sem ráða yfir minnst 5% hlutafjárins, krefjast þess skriflega og greina fundarefni. Samkvæmt sömu greinum hefur stjórn 14 daga til að senda út fundarboð.

Stjórn félagsins mun á næstu dögum taka afstöðu til þessara krafna hluthafanna og undirbúa boðun hluthafafundar.

Nánari upplýsingar veitir Andri Ólafsson samskiptastjóri í síma 660-5105.

GlobeNewswire