Origo hf. – Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Reykjavík, 29. desember 2019

Origo hf. (ORIGO) keypti í vikunni alls 325.000 eigin hluti fyrir kr. 8.531.250 eins og hér segir:  

DagsetningTími
Keyptir hlutir
Viðskiptaverð
 KaupverðHlutir í eigu Origo eftir viðskipti
23.12.2019
9:53    325.000     26,25  8.531.250  23.485.198

Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem samþykkt  var af stjórn félagsins sbr. tilkynningu til Kauphallar 31.október sl.

Origo hefur nú keypt samtals 10.132.380 hluti, sem samsvarar 88,18% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals kr.267.271.851. Origo á nú samtals 5,11% af heildarhlutafé félagsins sem er 459.600.000 en fyrir átti félagið 13.173.818 hluti.

Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 11.490.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en kr. 300.000.000. Heimildin gildir til 10. febrúar 2020. Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf verða í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995 og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.


Nánari upplýsingar
Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@origo.is og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@origo.is.