Reykjavík, 11. júní 2020
Tomas Wikström, sem hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra Applicon AB í Svíþjóð, dótturfélags Origo hf. undanfarin ár, hefur óskað eftir að láta af störfum.
Håkan Nyberg mun taka við framkvæmdastjórastöðu Applicon AB tímabundið. Håkan hefur síðustu ár verið stjórnarmaður hjá Applicon AB og þekkir félagið vel. Hann hefur víðtæka reynslu sem stjórnandi og stjórnarmaður á fjármálamarkaði og í tæknirekstri, sem mun nýtast félaginu vel. Håkan er m.a. fyrrverandi forstjóri Nordnet Bank AB og IKANO Bank.
Finnur Oddsson, forstjóri:
Mig langar að þakka Tomasi langt og afar farsælt starf í þágu Applicon AB og Origo. Tomas hefur leitt Applicon síðustu 8 ár og gegnt lykilhlutverki í að styrkja félagið til framtíðar, sem nú stendur traustum fótum. Fyrir hönd Origo þakka ég honum fyrir mikilvægt framlag og óska velfarnaðar í næstu verkefnum.
Nánari upplýsingar
Finnur Oddsson forstjóri í síma 862-0310 eða fo@nyherji.is og Gunnar Petersen framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 825-9001 eða gp@nyherji.is.