Marel hf. birti uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung 2022 eftir lokun markaða þann 2. nóvember 2022.
Meðfylgjandi má finna 3F 2022 fjárfestakynninguna sem farið verður yfir á afkomufundi með markaðsaðilum í dag, fimmtudaginn 3. nóvember 2022 kl. 8:30.
Þar munu stjórnendur kynna afkomu félagsins og helstu atriði úr rekstri á þriðja ársfjórðungi.
Fundinum verður vefvarpað beint á marel.com/webcast og upptaka verður aðgengileg á marel.com/ir eftir fundinn.
Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn:
- IS: +354 800 7437 (PIN 84639778#)
- NL: +31 20 721 9495
- UK: +44 33 3300 9035
- US: +1 646 722 4956
Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Marel í gegnum netfangið ir@marel.com og í síma 563 8001.
Um Marel
Marel (NASDAQ: MAREL; AEX: MAREL) er í fararbroddi á heimsvísu í þróun og framleiðslu tækja, hugbúnaðar og þjónustu fyrir matvælavinnslu á kjúklingi, kjöti og fiski. Í gegnum árin, hefur Marel skref fyrir skref, útvíkkað starfsemi sína. Með kaupunum á Wenger, sem tilkynnt voru 27. apríl, myndast fjórða stoðin í viðskiptamódeli Marel með áherslu á lausnum fyrir matvælavinnslu fyrir gæludýr, plöntuprótein og fóður fyrir fiskeldi. Hjá félaginu starfa yfir +7.000 manns í yfir 30 löndum, þar af um 750 á Íslandi. Tekjur Marel námu um 1,4 milljarði evra árið 2021 en árlega fjárfestir Marel um 6% af tekjum í nýsköpun og vöruþróun sem styður við aukna hagkvæmni, öryggi og sjálfbærni í matvælavinnslu. Félagið hefur verið skráð í Kauphöll Íslands síðan 1992 og var lokið við tvíhliða skráningu í Euronext Kauphöllina í Amsterdam árið 2019. Frekari upplýsingar má finna á marel.com/ir.
Viðhengi