Í viku 25 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 443.516 eigin hluti að kaupverði 15.206.747 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
19.6.2023 | 10:55:27 | 5.885 | 34,20 | 201.267 |
20.6.2023 | 15:11:23 | 52.631 | 34,20 | 1.799.980 |
23.6.2023 | 13:00:26 | 5.226 | 34,30 | 179.252 |
23.6.2023 | 15:11:27 | 379.774 | 34,30 | 13.026.248 |
Samtals | 443.516 | 15.206.747 | ||
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 17.05.2023.
Sjóvá átti 10.070.750 eigin hluti fyrir viðskiptin og eiga að þeim loknum 10.514.266 eigin hluti eða sem nemur 0,89% af útgefnum hlutum í félaginu.
Sjóvá hefur keypt samtals 3.330.358 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,28% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 114.228.950 kr. Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 7.331.378 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 1,23% af útgefnum hlutum í félaginu. Heildarkaupverð má þó ekki vera hærra en 250.000.000 kr. Endurkaupaáætlunin er í gildi til og með 10. september 2024, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veitir:
Davíð Scheving Thorsteinsson í síma 869-8109 eða á netfangið fjarfestar@sjova.is