Í 44. viku 2023 keypti Eimskipafélag Íslands hf. 165.000 eigin hluti fyrir ISK 76.939.500 eins og hér segir:
Dagsetning | Tími viðskipta | Keyptir hlutir | Gengi á hlut | Kaupverð |
30.10.2023 | 09:43 | 33.000 | 477,00 | 15.741.000 |
31.10.2023 | 11:31 | 33.000 | 471,50 | 15.559.500 |
1.11.2023 | 09:35 | 33.000 | 470,00 | 15.510.000 |
2.11.2023 | 15:04 | 33.000 | 463,00 | 15.279.000 |
3.11.2023 | 10:10 | 33.000 | 450,00 | 14.850.000 |
Samtals | 165.000 | 76.939.500 |
Um er að ræða kaup Eimskips á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 11. október 2023, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 10. október 2023.
Eimskip átti 2.154.320 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 2.319.320 hluti sem nemur 1,38% af heildarhlutafé félagsins.
Eimskip hefur nú keypt samtals 594.000 hluti skv. núgildandi áætlun, eða sem nemur 27,63% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir á grundvelli hennar. Kaupverð samtals er kr. 280.797.000 sem nemur 28,08% hámarksfjárhæðar skv. núgildandi áætlun.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða í kauphöll Nasdaq Iceland hf. að hámarki keyptir 2.150.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meira en 1.000 milljónir króna . Heimildin gildir í 18 mánuði frá aðalfundi félagsins sem var haldinn 9. mars 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.
Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, og reglugerð framkvæmdastjórnar 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir
Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla, sími: 844 4752, netfang: investors@eimskip.com