Tilnefningarnefnd Regins hf. auglýsir eftir framboðum og tilnefningum til stjórnar Regins fyrir aðalfund félagsins sem haldinn verður þriðjudaginn 12. mars 2024.
Vakin er athygli á því að frestur til að skila inn framboðum til nefndarinnar er til fimmtudagsins 18. janúar 2024 og skal senda þær á tilnefningarnefnd@reginn.is. Tilnefningar nefndarinnar um stjórn félagsins verða birtar samhliða birtingu fundarboðs aðalfundar, sem samkvæmt samþykktum félagsins er boðað til með skemmst þriggja vikna fyrirvara.
Frekari upplýsingar má finna á vefsíðu félagsins www.reginn.is/fjarfestavefur.
Tilnefningarnefnd Regins hf.