Í 3. viku 2024 keypti Eimskip 38.000 eigin hluti fyrir kr. 17.975.500 samkvæmt neðangreindu:
Dagsetning | Tími viðskipta | Keyptir hlutir | Gengi á hlut | Kaupverð |
15.1.2024 | 09:36 | 33.000 | 473,50 | 15.625.500 |
16.1.2024 | 10:07 | 5.000 | 470,00 | 2.350.000 |
Samtals | 38.000 | 17.975.500 |
Um er að ræða kaup Eimskips á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 11. október 2023, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 10. október 2023.
Eimskip átti 3.837.320 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 3.875.320 hluti sem nemur 2,31% af heildarhlutafé félagsins.
Kaupum samkvæmt endurkaupaáætluninni er nú lokið.
Eimskip hefur nú keypt samtals 2.150.000 hluti skv. núgildandi áætlun, eða sem nemur 100% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir á grundvelli hennar. Kaupverð samtals er 997.861.000 sem nemur 99,79% hámarksfjárhæðar skv. núgildandi áætlun.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða í kauphöll Nasdaq Iceland hf. að hámarki keyptir 2.150.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meira en 1.000 milljónir króna . Heimildin gildir í 18 mánuði frá aðalfundi félagsins sem var haldinn 9. mars 2023, nema skilyrði um hámarkskaup verði uppfyllt fyrir þann tíma.Framkvæmd endurkaupaáætlunar og tilkynningar um viðskipti með eigin bréf eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, og reglugerð framkvæmdastjórnar 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir
Guðbjörg Birna Björnsdóttir, forstöðumaður fjárstýringar og fjárfestatengsla, sími: 844 4752, netfang: investors@eimskip.com