Drög að samstæðuuppgjöri Kviku banka hf. („Kvika“) fyrir fjórða ársfjórðung 2023 liggja nú fyrir en samkvæmt drögunum er hagnaður samstæðunnar fyrir skatta áætlaður um 1.480 m.kr. á fjórða ársfjórðungi, sem er ekki í samræmi við áætlun stjórnenda.
Rekstrarniðurstaðan varð fyrir neikvæðum áhrifum vegna einskiptisliða að fjárhæð 230 m.kr. og 530 m.kr. sértækrar niðurfærslu vegna stakrar innlendrar útlánaáhættu. Að öðru leyti var rekstur samstæðunnar í takti við áætlun á tímabilinu.
Ársuppgjör vegna 2023 er óendurskoðað og enn í vinnslu og getur tekið breytingum fram að birtingu. Kvika mun birta uppgjör ársins 2023 eftir lokun markaða þann 15. febrúar 2024.
Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi er tilkynning á innherjaupplýsingum í samræmi við 17. gr. reglugerðar (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik („MAR“), sem var veitt lagagildi hérlendis með lögum um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Fyrir frekari upplýsingar vinsamlegast hafið samband við fjárfestatengsl Kviku á netfanginu ir@kvika.is