Rafrænn fundur - Bein útsending frá Berjaya Iceland Hotels Reykjavík Natura - kl. 16:00
Stjórn Icelandair Group hefur ákveðið að aðalfundur félagsins þann 7. mars 2024 verði haldinn rafrænt, sbr. grein 4.6 í samþykktum félagsins. Hluthafar sem hyggjast sækja fundinn skulu tilkynna þátttöku sína með þriggja daga fyrirvara og leggja fram skriflegar spurningar varðandi dagskrá eða gögn sem lögð verða fram á fundinum og þeir óska svara við, sbr. grein 4.4 í samþykktum félagsins. Skráning á fundinum fer fram í gegnum www.icelandairgroup.com/agm. Skráðir þátttakendur munu fá sendar upplýsingar í tölvupósti fyrir fundinn um hvernig þeir geta tekið þátt og greitt atkvæði ásamt tengli á beina útsendingu fundarins. Fundinum verður streymt beint frá Reykjavík Natura hótelinu en opið verður fyrir mætingu á staðinn. Atkvæðagreiðsla og umræður verða þó einungis rafrænar. Fundurinn verður haldinn á íslensku en bein þýðing á ensku verður í boði bæði í beinni útsendingu í streyminu og á fundarstað.
DAGSKRÁ
- Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár
- Staðfesting ársreiknings og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu
- Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna
- Tillögur félagsstjórnar um starfskjarastefnu
- Skýrsla og tillögur tilnefninganefndar um skipan stjórnar
- Kosning tveggja fulltrúa í tilnefningarnefnd
- Kosning stjórnar félagsins
- Tilnefning til endurskoðunarnefndar
- Kosning endurskoðanda
- Kaupréttarkerfi
- Breyting á samþykktum félagsins
- Heimild til kaupa á eigin bréfum
- Önnur mál löglega fram borin
Nánari upplýsingar:
Ari Guðjónsson, yfirlögfræðingur
Netfang: ari@icelandairgroup.is, sími: +354 661-2188
Viðhengi