Reginn mun birta samþykkt uppgjör fyrir tímabilið 1.1.- 31.3.2024, eftir lokun markaða miðvikudaginn 8. maí 2024.
Af því tilefni býður Reginn hf. til rafræns kynningarfundar samdægurs kl. 16:15.
Halldór Benjamín Þorbergsson forstjóri Regins mun kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu. Hægt er að senda fyrirspurnir á fjarfestatengsl@reginn.is fyrir fundinn og meðan á kynningu stendur sem svarað verður að kynningu lokinni.
Fundinum verður varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð:
https://vimeo.com/event/4272128/embed/5073f3b58e/interaction
Nánari upplýsingar veitir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Regins hf., sími: 821 0001