REITIR: Framkvæmd endurkaupaáætlunar í viku 21


Stjórn Reita fasteignafélags hf. samþykkti nýja endurkaupaáætlun félagsins þann 1. maí 2024 sbr. tilkynningu í Kauphöll þann dag. Var henni hrint í framkvæmd þann 2. maí 2024. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í samræmi við ákvæði hlutafélagalaga nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.

Í 21. viku 2024 keypti Reitir fasteignafélag hf. 863.500 eigin hluti að kaupverði 70.082.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirGengiKaupverðEigin hlutir eftir viðskipti
21/5/2410:21100.00081,508.150.0007.276.354
21/5/2414:02100.00082,508.250.0007.376.354
21/5/2415:1063.50082,005.207.0007.439.854
22/5/2410:07100.00081,258.125.0007.539.854
22/5/2412:11100.00081,008.100.0007.639.854
23/5/2410:33100.00080,508.050.0007.739.854
23/5/2414:53100.00081,008.100.0007.839.854
24/5/2411:55100.00080,508.050.0007.939.854
24/5/2414:24100.00080,508.050.0008.039.854
Samtals 863.500 70.082.0008.039.854


Reitir hafa nú keypt samtals 2.489.854 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 49,8% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt núgildandi áætlun. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 192.495.373 kr. sem samsvarar 45,3% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir.

Samkvæmt núgildandi endurkaupaáætlun verða að hámarki keyptir 5.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei hærri en 425 milljónir króna.

Frá lokum fyrsta ársfjórðungs 2024, síðasta birta uppgjöri félagsins, hefur félagið keypt 6.439.854 eigin hluti fyrir 500.469.546 kr.

Reitir eiga nú samtals 8.039.854 eigin hluti, eða um 1,13% af heildarhlutafé félagsins. Útistandandi hlutir í félaginu eru því 703.510.146.

Upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416 eða á einar@reitir.is.