Alvotech (NASDAQ: ALVO) tekur í heilbrigðisráðstefnu Jefferies fjárfestingabankans, í New York dagana 5.-6. júni nk. Alvotech mun halda kynningu og funda með fjárfestum og viðskiptavinum á ráðstefnunni.
Kynning Anils Okays, framkvæmdastjóra viðskiptasviðs Alvotech, verður á dagskrá 6. júní nk. kl. 13:00 að staðartíma eða 17:00 að íslenskum tíma. Hljóðútsending er í boði af fundinum og má nálgast hana á fjárfestavef Alvotech á slóðinni https://investors.alvotech.com/events/event-details/jefferies-nyc-2024. Að kynningunni lokinni verður hljóðupptaka af fundinum aðgengileg á sömu slóð í 90 daga.
Um Alvotech
Alvotech, stofnað af Róberti Wessman stjórnarformanni fyrirtækisins, er líftæknifyrirtæki sem einbeitir sér að þróun og framleiðslu líftæknihliðstæðulyfja fyrir sjúklinga um allan heim. Alvotech stefnir að því að verða leiðandi fyrirtæki á sviði líftæknihliðstæðulyfja. Til að tryggja hámarksgæði eru allir þættir í þróun og framleiðslu í höndum fyrirtækisins. Alvotech vinnur að þróun átta líftæknilyfjahliðstæða sem nýst geta sjúklingum með sjálfsofnæmis-, augn- og öndunarfærasjúkdóma, beinþynningu eða krabbamein. Alvotech hefur gert samninga um sölu, markaðssetningu og dreifingu við samstarfsaðila á öllum helstu mörkuðum, í Bandaríkjunum, Evrópu, Japan, Kína, öðrum hlutum Asíu, Rómönsku Ameríku, Afríku og Mið-Austurlöndum. Meðal samstarfsaðila Alvotech eru Teva Pharmaceuticals, dótturfélag Teva Pharmaceutical Industries Ltd. (markaðsaðili í Bandaríkjunum), STADA Arzneimittel AG (Evrópa), Fuji Pharma Co., Ltd (Japan), Advanz Pharma (EES, Bretland, Sviss, Kanada, Ástralía og Nýja Sjáland), Cipla/Cipla Gulf/Cipla Med Pro (Ástralía, Nýja Sjáland, Afríka), JAMP Pharma Corporation (Kanada), Yangtze River Pharmaceutical (Group) Co., Ltd. (Kína), DKSH (Taívan, Hong Kong, Kambódía, Malasía, Singapore, Indonesía, Indland, Bangladess og Pakistan), YAS Holding LLC (Miðausturlönd og Norður Afríka), Abdi Ibrahim (Tyrkland), Kamada Ltd. (KMDA; Ísrael), Mega Labs, Stein, Libbs, Tuteur and Saval (Rómanska-Ameríka) og Lotus Pharmaceuticals Co., Ltd. (Taíland, Víetnam, Filippseyjar og Suður-Kórea).
Frekari upplýsingar veitir:
Alvotech, fjárfestatengsla- og samskiptasvið
Benedikt Stefánsson, forstöðumaður
benedikt.stefansson@alvotech.com