Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 40 keypti Heimar hf. („Heimar“) 5.000.000 eigin hluti að kaupverði 154.800.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
30.09.202409:471.000.00030,930.900.000
01.10.202409:351.000.00030,830.800.000
02.10.202409:361.000.00031,431.400.000
03.10.202410:441.000.00030,930.900.000
04.10.202409:37 1.000.00030,8 30.800.000
Samtals 5.000.000  154.800.000

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 16. september 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins félagsins 2025.

Heimar átti 8.000.000 fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 13.000.000 hluti, eða um 0,72% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 398.500.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is