Landsbankinn hf. tilkynnti í dag um niðurstöður endurkaupatilboðs sem birt var þann 30. september 2024 til eigenda skuldabréfa í evrum á gjalddaga 2025 (ISIN: XS2306621934) þar sem bankinn bauðst til að kaupa skuldabréfin til baka gegn greiðslu reiðufjár. Endurkaupin byggðu á skilmálum endurkaupatilboðs (e. tender offer memorandum).
Í skuldabréfaflokkinn bárust gild tilboð að fjárhæð 124.731.000 evra og voru öll tilboð samþykkt.
Umsjónaraðilar eru ABN AMRO Bank, J.P. Morgan, Natixis og Nomura.
Nánari upplýsingar um niðurstöður endurkaupatilboðs má finna í tilkynningu í írsku kauphöllinni (www.ise.ie) þar sem skuldabréfin eru skráð.
Þessi tilkynning er birt af Landsbankanum hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust eða kunna að hafa talist innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem innihalda upplýsingar tengdar endurkaupatilboðinu sem lýst er hér að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Hreiðari Bjarnasyni, framkvæmdastjóra fjármála hjá Landsbankanum hf., í samræmi við upplýsingaskyldu Landsbankans hf. samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.