Traust fjárhagsstaða í erfiðu rekstrarumhverfi


Þjónusta og lífsgæði íbúa Garðabæjar áfram í fremstu röð

Álögum á íbúa Garðabæjar verður áfram stillt í hóf, grunnrekstur bæjarins styrkist enn frekar og skuldir verða sem áður hóflegar samkvæmt nýrri fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2025. Fjárhagsáætlun ársins 2025 var lögð fram til fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi í dag, fimmtudaginn 7. nóvember.

„Með þessari áætlun gerum við ráð fyrir að renna stoðum enn frekar undir traustan fjárhag Garðabæjar. Við sjáum það á útkomuspá þessa árs að hagræðingaraðgerðir hafa borið árangur. Þjónusta Garðabæjar verður áfram í hæsta gæðaflokki, uppbygging innviða heldur áfram og við ætlum okkur að halda í gæðin sem við bjóðum upp á,“ segir Almar Guðmundsson, bæjarstjóri Garðabæjar.

Mikill bati hefur orðið á grunnrekstri Garðabæjar árið 2024, eins og fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir. Veltufé frá rekstri í A sjóði styrkist verulega. Veltufé frá rekstri fyrir samstæðuna í heild er áætlað um 2.700 m.kr. Hagræðingaraðgerðir hafa skilað sér og reksturinn hefur styrkst.

Íbúafjölgun heldur áfram og eru Garðbæingar nú ríflega 20 þúsund. Mikil uppbygging stendur yfir í Garðabæ, en eins og á yfirstandandi ári verður framkvæmdum forgangsraðað eftir mikilvægi.

Samkvæmt fjárhagsáætlun 2025 verður áhersla lögð á að klára síðasta áfanga Urriðaholtsskóla og hefja mikilvægar veituframkvæmdir á Álftanesi. Áætlað er að framkvæma fyrir 4.921 m.kr. 

Fjárhagsáætlunin gerir ráð fyrir að álögum á íbúa verði áfram stillt í hóf, en hlutfall  útsvarsprósentu Garðabæjar er það lægsta meðal stærstu sveitarfélaga landsins.  Fasteignaskattar á íbúa verða ekki hækkaðir umfram verðlag.

Lykiltölur fjárhagsáætlunar:

  • Rekstrarniðurstaða A sjóðs er jákvæð um 112 m.kr.
  • Rekstrarniðurstaða A og B sjóðs er jákvæð um 469 m.kr.
  • Veltufé frá rekstri nemur um 2.700 m.kr. og hefur grunnrekstur bæjarins styrkst verulega.
  • Skuldaviðmið skv. reglugerð nemur um 103,7% hjá A- sjóði og 105,7% hjá A og B sjóði
  • Skuldahlutfall A sjóðs lækkar í 122%.

„Við horfum til framtíðar en lítum einnig stolt til baka á hvernig við höfum viðhaldið góðri stöðu bæjarins í flóknu rekstrarumhverfi verðbólgunnar, hárra vaxta og óvissu kjarasamninga. Okkur hefur tekist að standa vörð um þjónustustig Garðabæjar og vernda lífsgæði íbúa,“ segir Almar.

Vakin er athygli á því að fjárhagsáætlun Garðabæjar verður einnig til umfjöllunar á bæjarstjórnarfundi 5. desember nk. Því má gera ráð fyrir að áætlunin muni taka einhverjum breytingum á milli umræðna í bæjarstjórn Garðabæjar. 

Viðhengi



Anhänge

Framkvæmdaáætlun 2025-2028 DRÖG Garðabær Fjárhagsáætlun 2025-2028 - ENDANLEGT Greinargerð_fjárhagsáætlun_2025_Drög