Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 45 keypti Heimar hf. („Heimar“) 4.000.000 eigin hluti að kaupverði 134.600.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð (kr.)
04.11.202409:421.000.00033,333.300.000
05.11.202409:381.000.00033,333.300.000
07.11.202409:321.000.0003434.000.000
08.11.202410:241.000.0003434.000.000
Samtals 4.000.000 134.600.000

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 16. október 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2025.

Heimar átti 23.312.500 fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 27.312.500 hluti, eða um 1,51% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 857.700.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is