Heimar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun
Í viku 48 keypti Heimar hf. („Heimar“) 5.000.000 eigin hluti að kaupverði 174.500.000 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
25.11.2024 | 10:08 | 1.000.000 | 34,5 | 34.500.000 |
26.11.2024 | 10:32 | 1.000.000 | 35 | 35.000.000 |
27.11.2024 | 14:17 | 1.000.000 | 34,8 | 34.800.000 |
28.11.2024 | 10:26 | 1.000.000 | 35,1 | 35.100.000 |
29.11.2024 | 09:50 | 1.000.000 | 35,1 | 35.100.000 |
Samtals | 5.000.000 | 174.500.000 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Heima sem tilkynnt var um þann 20. nóvember 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 500.000.000 kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins 2025.
Heimar átti 33.445.833 fyrir ofangreind viðskipti og á því að þeim loknum 38.445.833 hluti, eða um 2,12% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 1.243.599.989 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Björn Eyþór Benediktsson – Framkvæmdastjóri fjármála – eythorb@heimar.is