SKAGI: Kaupréttaráætlun starfsfólks


Á aðalfundi Vátryggingafélags Íslands hf.(Skaga), þann 21. mars sl., var stjórn félagsins veitt heimild til að samþykkja kaupréttaráætlun byggð á 10. gr. laga um tekjuskatt nr. 90/2003 og gera á grundvelli hennar kaupréttarsamninga við starfsfólk Skaga og dótturfélaga þess. Þann 24. júní sl. var kaupréttaráætlun útfærð af stjórn Skaga og samþykkt af skattinum þann 14. október sl.  

Nú hefur verið gengið frá kaupréttarsamningum við starfsfólk í samræmi við samþykkta kaupréttaráætlun. Kaupréttur samkvæmt áætluninni nær til allra fastráðinna starfsmanna Skaga og dótturfélaga þess og er markmið áætlunarinnar að samþætta hagsmuni starfsfólks við langtímamarkmið félagsins og dótturfélaga þess.

Samkvæmt áætluninni öðlast kaupréttarhafi rétt til að kaupa hlut í félaginu fyrir að hámarki 1.500.000 krónur einu sinni á ári í þrjú ár fyrst að 12 mánuðum liðnum frá undirritun samnings. Kaupverð er vegið meðalverð í viðskiptum með hlutabréf félagsins tíu viðskiptadaga fyrir samningsdag, sem er 3. desember, eða 19,11 krónur á hvern hlut. 

Alls gerðu 246 starfsmenn samstæðunnar kaupréttarsamning sem ná til allt að 19.307.468 hluta á ári miðað við 100% nýtingu kauprétta.

Nánari upplýsingar um framkvæmd má finna í meðfylgjandi skjölum.

Fylgiskjöl

Kaupréttaráætlun og kaupréttarsamningur undirrituð af stjórn  

Viðhengi



Anhänge

Kaupréttaráætlun Skaga samstæðu 2024_staðfest