Eik fasteignafélag hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 50. viku 2024 keypti Eik fasteignafélag hf. 6.805.000 eigin hluti fyrir ISK 92.956.300 eins og hér segir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
9.12.202410:231.361.00013,50018.373.50018.327.000
10.12.202414:241.361.00013,45018.305.45019.688.000
11.12.202411:071.361.00013,70018.645.70021.049.000
12.12.202409:571.361.00013,70018.645.70022.410.000
13.12.202413:531.361.00013,95018.985.95023.771.000
 Samtals6.805.000 92.956.300 

Kaupin eru í samræmi við endurkaupaáætlun sem var hrint í framkvæmd 29. nóvember 2024, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 28. nóvember 2024.  Endurkaupin munu að hámarki nema samtals 300 milljónum króna að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til framangreindu viðmiði er náð, en þó aldrei lengur en til 31. janúar 2025.

Eik átti 16.966.000  eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 23.771.000 eða sem nemur 0,69% af útgefnum hlutum í félaginu.

Eik hefur keypt samtals 14.971.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,44% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 205.442.950 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og tilkynningar um viðskipti eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, og reglugerð framkvæmdastjórnar 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs á netfanginu lydur@eik.is