Lánasjóður sveitarfélaga var með skuldabréfaútboð í flokkunum LSS 39 0303 og LSS151155 þann 8. janúar 2025. Uppgjör viðskipta fer fram 13. janúar 2025.
Alls bárust tilboð í LSS 39 0303 að nafnvirði ISK 3.060.000.000 á bilinu 3,56% - 3,70%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.310.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,59%. Útistandandi fyrir voru ISK 31.902.600.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 500.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 33.212.600.000.
Alls bárust tilboð í LSS151155 að nafnvirði ISK 2.190.000.000 á bilinu 3,32% - 3,41%. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði ISK 1.540.000.000 á ávöxtunarkröfunni 3,35%. Útistandandi fyrir voru ISK 33.355.000.000 að meðtöldum eigin bréfum Lánasjóðsins vegna viðskiptavaktar (ISK 440.000.000). Heildarstærð flokksins er nú ISK 34.895.000.000.
Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, ottar@lanasjodur.is / s. 515 4949