Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í viku 11 keypti Kvika banki hf. („Kvika“ eða „bankinn“) 11.000.000 eigin hluti að kaupverði 219.000.000 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverð (gengi)Kaupverð
10.3.202511:25:363.000.000 20,160.300.000    
11.3.202511:37:213.000.000 19,859.400.000    
12.3.202514:45:243.000.000 19,959.700.000    
14.3.202514:27:372.000.000 19,839.600.000    
Samtals 11.000.000 219.000.000

Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 27. febrúar sl. og er gerð í samræmi við heimild hluthafafundar Kviku þann 21. mars 2024.

Kvika hefur nú keypt samtals 27.147.962 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,575% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 541.656.231 kr. Eftir kaupin eru eigin hlutir Kviku samtals 89.041.303 hlutir eða sem nemur 1,886% af útgefnum hlutum í félaginu.

Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 2.500.000.000 að kaupvirði.

Endurkaupaáætlunin er í gildi frá 27. febrúar 2025 til aðalfundar Kviku á árinu 2026 nema hámarks kaupvirði verði náð fyrir þann tíma. Gildistími endurkaupaáætlunarinnar er þó háður því að heimild til endurkaupa verða framlengd á aðalfundi bankans hinn 26. mars næstkomandi.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög. þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014. sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016. sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.

Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is