Akureyrarbær hefur lokið stækkun á skuldabréfaflokknum AKU 10 1, fyrir 1.000 m.kr. að nafnverði á ávöxtunarkröfunni 3,90%, en stefnt er að því að stækkunin verði tekin til viðskipta í kauphöll Nasdaq Iceland.
AKU 10 1 er verðtryggt jafngreiðslubréf með lokagjalddaga 20. júní 2044 og verður eftir stækkun 6.760 m.kr. að nafnvirði.
Greiðslu- og uppgjörsdagur er fyrirhugaður miðvikudaginn 13. maí 2026 og í kjölfarið verður sótt um að stækkunin verði tekin til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hf. hafði umsjón með útgáfunni og töku þeirra til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland.
Nánari upplýsingar veitir: Dan Brynjarsson, sviðsstjóri fjársýslusviðs dan@akureyri.is