Landsbankinn hf.: Niðurstaða skiptiútboðs sértryggðra skuldabréfa


Í tengslum við útboð Landsbankans á sértryggðum skuldabréfum í gær fór fram skiptiútboð þar sem fjárfestar áttu kost á því að greiða fyrir skuldabréf í útboðinu með afhendingu skuldabréfa í flokki LBANK CBI 26 á fyrirframákveðna verðinu 99,456.

Niðurstaða skiptiútboðs leiðir til þess að Landsbankinn kaupir 580 m.kr. að nafnverði í flokki LBANK CBI 26.

Uppgjör endurkaupanna fer fram þann 8. júlí 2026.


GlobeNewswire