Íþaka fasteignir ehf.: Árshlutareikningur fyrstu 6 mánuði 2026


Stjórn Íþöku fasteigna ehf. samþykkti á fundi sínum í dag, miðvikudaginn 30. september 2026, árshlutareikning félagsins fyrir fyrri árshelming 2026. Uppgjör félagsins hefur nú verið birt.

Helstu atriði árshlutareiknings:

  • Heildarafkoma félagsins á tímabilinu var 787,5 m.kr., þar voru stórir þættir rekstrartekjur félagsins sem voru 1.849,3 m.kr. á tímabilinu og matsbreyting fjárfestingaeigna að fjárhæð 1.040,2 m.kr.
  • Heildar eignir félagsins námu 50.443,2 m.kr. m.v. 30. júní 2026, en þar af voru fjárfestingareignir 48.605,5 m.kr. og handbært fé 95,5 m.kr. Vaxtaberandi skuldir námu 28.765,3 m.kr. og eigið fé félagsins var 15.620.8 m.kr.
  • Eiginfjárhlutfall félagsins í lok tímabilsins var 31,0%.

Árshlutareikningur félagsins er meðfylgjandi og er einnig að finna á heimasíðu félagsins, https://www.ithaka.is/fjarhagsupplysingar

Félagið hefur gefið út skuldabréf í flokkunum ITHAKA 070627, ITHAKA 291128, ITHAKA 051233 og ITHAKA 300834 og hafa skuldabréf í öllum flokkum verið tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf.

Íþaka fasteignir ehf. rekur og leigir út atvinnuhúsnæði, byggir upp lóðir og þróar lausnir til að mæta húsnæðisþörf fyrirtækja. Félagið stefnir að því að vera styrk stoð í íslensku samfélagi með heilnæmt og sveigjanlegt húsnæði sem uppfyllir þarfir atvinnulífsins á hverjum tíma.

Nánari upplýsingar veitir Pétur Freyr Pétursson, framkvæmdastjóri, í síma 822-4477 eða í tölvupósti á peturfreyr@ithaka.is 

Viðhengi



Anhänge

Íþaka fasteignir ehf. - árshlutareikningur 30.06.2026
GlobeNewswire