Í viku 44 keyptu Sjóvá-Almennar tryggingar hf. (Sjóvá) 408.000 eigin hluti að kaupverði 17.830.400 kr. eins og nánar er greint frá hér:
| Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr) |
| 27.10.2026 | 09:50:08 | 8.000 | 43,80 | 350.400 |
| 30.10.2026 | 10:11:47 | 200.000 | 43,80 | 8.760.000 |
| 30.10.2026 | 11:03:44 | 200.000 | 43,60 | 8.720.000 |
| 408.000 | 17.830.400 |
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 05.05.2026.
Sjóvá átti 9.464.577 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 9.872.577 eigin hluti eða sem nemur 0,85% af útgefnum hlutum í félaginu.
Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 14.000.000 hlutum þannig að eigin hlutir nemi að hámarki 1,21% af útgefnu hlutafé félagsins. Heildarkaupverð endurkaupanna verður þó ekki hærra en 500 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að endurkaupum samkvæmt áætluninni ljúki í síðasta lagi 12. september 2027 eða fyrr ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þá dagsetningu.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Nánari upplýsingar veitir Særún Sigurpálsdóttir í síma 858-7997 eða fjarfestar@sjova.is